9.6.2012 | 09:13
Þorðu að spyrja
10 ára stúlka komst á dögunum í heimsfréttirnar fyrir að reka stjórnvöld í heimalandi sínu á gat með einfaldri spurningu. Stúlkan sem er indversk spurði einfaldlega : hvenær varð Gandhi faðir þjóðarinnar .Við þessari einföldu spurningu fengust engin svör en unnið er að því hörðum höndum að komast að svarinu. Fram til þessa hefur engum dottið í hug að spyrja þessarar spurningar, spuringar sem er þjóðinni mkilvæg því eins og stúlkan segir við eigum að vita allt um Gandhi. Þjóðin tekur því sem sjálfsögðum hlut að hann sé faðir þjóðarinnar, allir nema 10 ára gömul stúlka.
Við þurfum að spyrja þessara einföldu en mikilvægu spurninga. Ekki bara um efni sem tengjast þjóð okkar heldur verðum við líka að spyrja okkur sjálf einföldu en um leið þeirra krefjandi spurninga sem fá okkur til að hugsa, velta fyrir okkur hvaðan við erum að koma og hvert við ætlum að fara.
Fyrir nokkrum árum sat ég fyrirlestur hjá Keith Cunnigham nokkrum. Þessi einfalda en krefjandi spurning ungu indversku stúlkunnar minnti mig á þann fyrirlestur því á honum lærði ég nokkrar einfaldar en mjög krefjandi spurningar sem ég hef spurt mig reglulega síðan.
· Hvað geri ég í dag til að nálgast það sem ég vil?
· Munu þessar aðgerðir færa mig nær markmiðunum eða er ég að gera málamiðlanir?
· Hvernig myndi manneskjan sem ég vil vera nálgast þetta verkefni?
· Hversu lengi get ég haldið í sýnina?
· Hver þarf ég að verða til að ná þeim árangri sem ég vil ná?
· Er ég tilbúin(n) til að takast á við afleiðingar þess að breytast ekki?
· Hver er við stjórnvölinn?
· Er ég að setja í gang þær aðgerðir sem leiða til þeirra áhrifa sem ég vil eða er ég að gera málamiðlanir?
· Er ég tilbúin(n) til að gera það sem til þarf?
· Hvað sé ég EKKI?
Fæsta daga hef ég svörin við þessum spurningum á reiðum höndum. En alveg eins og spurning indversku stúlkunnar þá fá þær mig til þess að hugsa mig gang og koma í veg fyrir að ég taki eingöngu því sem lífið fleygir að mér. Þær krefja mig til að taka meðvitaðar ákvarðanir og ekki síst til þess að skoða markmið mín og sýn. Hver vil ég vera og hvert vil ég fara. Það er það mikilvæga.
Spurningarnar gera það að verkum að markmið mín hafa orðið skýrari, það er auðveldara að takast á við krefjandi aðstæður, hegðun mín er tengdari gildum mínum. Þegar við lifum lífi okkar í takt við gildi okkar náum við markmiðum okkar fyrr en ella, sjálfstraust okkar eykst sem gerir það að verkum að við getum tekist á við meira krefjandi viðfangsefni.
Allt hefst þetta á því að hafa sýn sem byggir á skýrum gildum. Sýnin þarf að vera knýjandi og eitthvað sem þig langar að stefna að. Nýttu þér svo spurningarnar að ofan til að færast í átt að þeirri sýn.
Hvaða spurningar fá þig til að hugsa? Spurðu þig þessara spurninga reglulega og árangurinn mun koma þér verulega á óvart.
Frétt á mbl.is um indversku stúlkuna.
Athugasemdir
Mér finnst þetta frábær færsla hjá þér Unnur og spurningalistinn hreinasta snilld. Við gerum allt flóknara en það þarf að vera. Til lukku með þetta innlegg þitt inn í umræðuna.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.6.2012 kl. 13:05
Kærar þakkir Ásthildur :)
Unnur Valborg Hilmarsdóttir, 9.6.2012 kl. 13:25
· Hvað geri ég í dag til að nálgast það sem ég vil?
Ekki neitt. Þig vantar ekkert.
· Munu þessar aðgerðir færa mig nær markmiðunum eða er ég að gera málamiðlanir?
Nei, og já.
· Hvernig myndi manneskjan sem ég vil vera nálgast þetta verkefni?
Með því að lifa góðu lífi en hætta að vera alltað að horfa á einhver "verkefni'.
· Hversu lengi get ég haldið í sýnina?
Þangið til þú hefur náð þeim þroska að sjá að "sýnin" er tálsýn.
· Hver þarf ég að verða til að ná þeim árangri sem ég vil ná?
Einhver sem skilur ekki að árangrinum er nú þegar náð.
· Er ég tilbúin(n) til að takast á við afleiðingar þess að breytast ekki?
Nei. Þú breytist, hvort sem þér líkar það betur eða verr. Hefur einhvað ár eða dagur liðið án þess að þú breyttist?
· Hver er við stjórnvölinn?
Þú.
· Er ég að setja í gang þær aðgerðir sem leiða til þeirra áhrifa sem ég vil eða er ég að gera málamiðlanir?
Ef þig langar til að vita hvernig líf, og hvernig aðgerðir eru heilbrigðar, lestu þá þetta:
http://www.thebigview.com/buddhism/eightfoldpath.html
· Er ég tilbúin(n) til að gera það sem til þarf?
Til hvers?
· Hvað sé ég EKKI?
Að þú hefur allt sem þú þarft og ekkert vantar.
Hörður Þórðarson, 9.6.2012 kl. 18:30
· Hvað geri ég í dag til að nálgast það sem ég vil?
Fyrst er að gera mér grein fyrir því hvað ég vil.
· Munu þessar aðgerðir færa mig nær markmiðunum eða er ég að gera málamiðlanir?
Það er undir mér sjálfri komið hvernig ég lít á málin, hvað það er sem ég set til grundvallar.
· Hvernig myndi manneskjan sem ég vil vera nálgast þetta verkefni?
Hún hlýtur að skoða málin frá öllum hliðum og þegar ég hef gert mér grein fyrir hvað ég vil samkvæmt spurningu númer eitt, þá liggur svarið fyrir.
· Hversu lengi get ég haldið í sýnina?
Meðan ég veit hvað ég vil og ætla að ná markmiðum mínum.
· Hver þarf ég að verða til að ná þeim árangri sem ég vil ná?
Fyrst og fremst ég sjálf, sú sem ég er.
· Er ég tilbúin(n) til að takast á við afleiðingar þess að breytast ekki?
Ég verð að vera það, en það er síðasta úrlausnin, allt hitt þarf að reyna fyrst.
· Hver er við stjórnvölinn?
Það hlýtur alltaf að vera ég sjálf.
· Er ég að setja í gang þær aðgerðir sem leiða til þeirra áhrifa sem ég vil eða er ég að gera málamiðlanir?
Það verður að skoðast í ljósi þess sem spurt er í fyrstu spurningu. Um leið og þeirri spurningu er svarað liggur svarið við.
· Er ég tilbúin(n) til að gera það sem til þarf?
Það verður bara að koma í ljós þegar að því kemur.
· Hvað sé ég EKKI?
Það er erfitt en með því að vera í sambandi við vini og vandamenn og leita til þeirra fæ ég ábendingu um hvað betur má fara.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.6.2012 kl. 19:54
Getið þið í allri vinsemd skotið eintaki af þessu til hennar Jóhönnu Sigurðar, hún sem er ráðherra!! hún er á villigötum og þarfnast aðstoðar til að komast inn á rétta braut.
Eyjólfur Jónsson, 9.6.2012 kl. 21:09
Það myndi ekki þýða Eyjólfur minn, hún hvorki hlustar, sér né tekur við ráðleggingum, það er hennar akkilesarhæll.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.6.2012 kl. 21:58
Börn eru heiðarleg og einföld, og á minni 67 ára æfi hef ég komist að því að einfalt er best. Þakka þér fyrir Unnur Valborg og fyrirgefðu afskiptasemina við gestþin og vin minn Eyjólf.
Sæll Eyjólfur, Jóhanna er með nef sem er ekki til að þefa með, og hún er með eyru sem ekki eru til að heyra með, og hún er með augu sem eru ekki til að sjá með og þarna á milli er þetta sem ekki er til að hugsa með. Þetta er alveg eins og með geldingu, þá verður til líffæri sem ekki er til að gera það með.
Hrólfur Þ Hraundal, 10.6.2012 kl. 08:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.